Welcome!
29.01.2007 18:01:13 / Jóhanna

Úff, peningaeyðsla.......

jahá... það er eins gott að maður fer ekki oft til Reykjavíkur yfir árið... :lol: þetta setur mann á hausinn...hihi :$ sem er náttúrulega BARA manni sjálfum að kenna hmmm ha hmmm!!! Við systur náðum s.s. að eyða alveg hellings af peningum ;) Sem betur fer voru komnar fullt af nýjum vörum, ég er ekki mikil útsölukelling, finnst alltaf bara vera eintómt rusl á þessum útsölum, fann mér samt 1 úlpujakka, bara plain svartan á útsölu í Sautján... fínt á veturnar... ;) annars var hitt allt nýtt sem ég verslaði... og var heill hellingur...  ;) Keypti sumarjakka á strákinn sem á að vera hluti af afmælisgjöfinni hans, því JÚ MIKIÐ RÉTT.. prinsinn minn er að verða 3 ára á morgun.... Er ekki enn að trúa því hvað þessi tími líður hratt... ÚFF :$:$:$ Svo keypti ég hvíta PUMA skó á hann, sem að amma og afi ætla að gefa honum sem hluta af afmælisgjöf.

Við mæðginin erum annars búin að vera heima í dag þar sem að strákurinn fékk hita í nótt og verður hann heima á afmælisdaginn sinn, litla skinnið mitt.... Pabbi hans ætlar að vera með hann fyrir hádegi svo ég komist aðeins í vinnuna....

Ræktin í kvöld og ljós á eftir... ahhhh það er svo gott ;)

Svo er það afmæliskaffi stráksins á laugardaginn, og Þorrablótið eftir 11 daga..YEAH BABE

Heyrumst!!!


Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.