Welcome!
02.02.2007 09:36:04 / Jóhanna

Jah hérna hér....

verð nú bara að segja það að hér á þessum bæ er sko mikil þreyta í gangi :$:$:$:$ ég er nánast stjörf 8| hér fyrir framan tölvuskjáinn... Hef sofið mjög illa síðustu 4 nætur, hef alltaf verið að rumska til að fylgjast með stráknum í þessum veikindum og þegar ég er vöknuð þá tekur mig heila eilífð að sofna aftur, eins og í nótt, vaknaði kl.5:30 og bylti mér í rúman klukkutíma, og þegar ég var að sofna hringdi klukkan... SHIT! 8|8|8| ég var ekki að meika það ... litli prinsinn minn er s.s. orðinn hitalaus en er enn með þennan leiðinlega hósta. Hann er einmitt núna hjá Ellu frænku sín þar sem að ég fór í vinnuna, enda búin að vera heima í 3 og hálfan dag og var að MYGLA :lol::$:lol:

En á morgun verður svo haldin afmælisveisla þar sem prisinn varð 3 ára á þriðjudaginn síðasta og auðvitað verður þema afmælisveislunnar SPIDERMAN! Uppáhaldið í dag ;)

Annars bara helgin að bresta á og One tree hill í kvöld... ;) díí maður beið spennt eftir því síðasta föstudag þrátt fyrir að hafa verið í borginni, en nei nei þá er framh. bara í kvöld... well ;) SVO er bara VIKA í Þorrablótið YEAH babe.. þetta líður ekkert smá hratt ;) verð orðin 40 ára piparjónka áður en ég veit af hehehe :haha::haha::haha: Bara fyndið ;)

Góða helgi ;)


» 1 hafa sagt sína skoðun

31.01.2007 18:27:50 / Jóhanna

Well well well....

enn er litli prinsinn minn lasinn, en er sem betur fer allur að koma til. ;) Hef ekki komist í vinnuna núna í 3 daga þannig að ég er alveg að mygla... ekki bið ég pabban um að passa drengin, neibb ekki séns, bið hann ekki um greiða, hef ekki áhuga á því, en það er lööööng saga á bak við það.. EN við eigum víst þetta yndislega barn saman, og því verður ekki breytt ;) enda myndi ég ekki breyta því, hann er jafn yndislegur þrátt fyrir allt (sko barnið mitt) og því myndi ég alls ekki breyta. Elska þennan prins minn útaf lífinu og ég mun gera ALLT fyrir hann ;) ALLT!!!

En nóg af þessu babli, ég vonandi kemst í vinnuna mína á morgun, en Ella sys ætlar að bjarga mér og vera hjá honum, eða hann hjá henni. Svo þarf nú að fara að sletta í form, en maður ætlar að reyna að halda afmælið fyrir ungan minn á laugardaginn.. baka baka baka... fullt af fólki ;)

Annars er ekki mikið að frétta úr þessu veikindabæli... íbúðin fer líklegast á sölu fljótlega, ætlaði að eiga hana, en svo bara ákvað ég að byrja upp á nýtt, með allt ;) nýtt líf, nýtt hús ;) Þannig að ef einhver er að leita sér af 110 fm nýrri íbúð á Akureyri þá fer mín íbúð að fara á sölu... :lol: kem nú til með að sakna hennar pínu samt gott að komast í eitthvað til að byrja uppá nýtt ;)

Annars bara útborgunardagur á morgun, eins gott að maður fái VEL útborgað svo maður eigi fyrir þessari Reykjavíkurferð sinni sem maður fór um síðustu helgi... hihi 8| annars er það bara spara spara spara því mig langar SVO erlendis í haust... er að hugsa um að REYNA að láta þann draum rætast ;) kemur í ljós síðar ;)

Hafið það gott elskurnar!


» 2 hafa sagt sína skoðun

30.01.2007 08:44:06 / Jóhanna

Hann á afmæli í dag...

Elsku litli prinsinn minn er 3 ára í dag.... Til hamingju með það elsku mömmustrákur!!!!! Þúsund kossar... :haha:

Litli prinsinn minn er samt sárlasinn heima í dag.... ömurlegur afmælisdagur ha! :lol: en svona er þetta bara... !!!

kv. Jóhanna

www.ringsted.barnaland.is   


» 1 hafa sagt sína skoðun

29.01.2007 18:01:13 / Jóhanna

Úff, peningaeyðsla.......

jahá... það er eins gott að maður fer ekki oft til Reykjavíkur yfir árið... :lol: þetta setur mann á hausinn...hihi :$ sem er náttúrulega BARA manni sjálfum að kenna hmmm ha hmmm!!! Við systur náðum s.s. að eyða alveg hellings af peningum ;) Sem betur fer voru komnar fullt af nýjum vörum, ég er ekki mikil útsölukelling, finnst alltaf bara vera eintómt rusl á þessum útsölum, fann mér samt 1 úlpujakka, bara plain svartan á útsölu í Sautján... fínt á veturnar... ;) annars var hitt allt nýtt sem ég verslaði... og var heill hellingur...  ;) Keypti sumarjakka á strákinn sem á að vera hluti af afmælisgjöfinni hans, því JÚ MIKIÐ RÉTT.. prinsinn minn er að verða 3 ára á morgun.... Er ekki enn að trúa því hvað þessi tími líður hratt... ÚFF :$:$:$ Svo keypti ég hvíta PUMA skó á hann, sem að amma og afi ætla að gefa honum sem hluta af afmælisgjöf.

Við mæðginin erum annars búin að vera heima í dag þar sem að strákurinn fékk hita í nótt og verður hann heima á afmælisdaginn sinn, litla skinnið mitt.... Pabbi hans ætlar að vera með hann fyrir hádegi svo ég komist aðeins í vinnuna....

Ræktin í kvöld og ljós á eftir... ahhhh það er svo gott ;)

Svo er það afmæliskaffi stráksins á laugardaginn, og Þorrablótið eftir 11 daga..YEAH BABE

Heyrumst!!!


» 0 hafa sagt sína skoðun

25.01.2007 21:45:32 / Jóhanna

Ákvað að setjast aðeins niður...

á meðan þurrkarinn minn klárar að þurrka þvottinn svo ég geti klárað að pakka, því REYKJAVÍK CITY.... Here I come... :haha::haha::haha: Yeah babe... Fer í flug strax eftir vinnu á morgun, þannig að það er best að vera búin að öllu áður en lagt verður afstað í vinnu í fyrramálið :)

Litli prinsinn minn ætlar að eiga góða og skemmtilega helgi með pabba sínum, á meðan ég fer og eyði aðeins peningum ...hehe !!! Er samt búin að lofa sjálfri mér að fara sparlega með kortið, EN maður á víst ALDREI að LOFA einhverju slíku...hihi :lol: Geri mitt besta ;) Ég þarf nú samt að finna eitt stykki íþr.skó á son minn.. PUMA :) sem að x-tengdó ætlar að gefa honum í afmælisgjöf, svo þarf nú ég að finna afmælisgjöf handa prinsinum mínum, nú og svo eitthvað fallegt handa mér OFCOURSE! maður fer nú svo sjaldan í borgina að maður verður aðeins að leyfa sér eitthvað. Nú svo að sjálfsögðu klikkar maður ekki að fara á Stylinn og svo ísbúðina í Faxafeninu eftir það ;) Mmmmmmm!!!! Þetta verður DEKURHELGI hjá manni.... :haha::haha::haha:

En jæja, meira fái þið ekki frá mér fyrir helgi, þannig að ég segi bara GÓÐA HELGI ELZKURNAR !!!!!!:P


» 3 hafa sagt sína skoðun

23.01.2007 18:59:44 / Jóhanna

I´m in LOVE ....

já þokkalega skal ég segja ykkur...... :D:D:D ég er svo ástfangin að ég get ekki hætt að brosa.... hehe Ég nefnilega pantaði mér topp í verslun fyrir sunnan algerlega blindandi, eða svona nánast, ég var að fá gripinn í hendurnar og viti menn, hann er svona ÓGEÐSLEGA FLOTTUR og smell passar að það hálfa væri nóg... ég er s.s. ástfangin af þessum topp skal ég segja ykkur... :haha:

En allavega eins og ég sagði í síðasta bloggi þá er ég að hugsa um að fara að sparka í bolta ;)  æfing í kvöld, og er ég að hugsa um að skreppa og hitta gellurnar sem ég ætla að sparka boltanum með hehe:D Úúú vona að mínar yndislegu fætur gefist ekki upp, eins og fyrir 8 árum síðan... arrrr! :evil: Maður bara ath. það hmmmm :$

OH! haldi þið ekki að mér hafi tekist að drepa GULLFISK nr. 2 fyrir syni mínum síðan ég gaf honum þá í byrjun des.... :evil: Þessi fiskaræktun á greinilega ekki við mig... það verður 1 gullfiskur í mánuði með þessu áframhaldi :$:$:$ EN maður lærir þetta vonandi með tímanum.. já og fleiri dauðum fiskum sem fara BEINT í Klóið... :cry: Blessuð sé minning þeirra... :$

Styttist í RVK city og ég er að deyja úr spenningi... tæpir 3 dagar til stefnu, klipp og lit á morgun og neglur á fimmtudag... Vúhú!!!

En well... see´ya :P


» 2 hafa sagt sína skoðun

22.01.2007 09:52:53 / Jóhanna

Mmmmm ahhhhh!!!

Djö eru mánudagar alltaf erfiðir, lang erfiðustu dagarnir til að vakna... :$

Við systur brunuðum í leikhús í gær, fórum á Svartan Kött hjá LA, alveg mögnuð sýning, hávaði, blóð, grín og bara allur pakkinn, mæli alveg með að sjá þessa sýningu, ekki það að ég sé einhver leikhúsfrömuður þó maður eigi nú árskort hjá LA :haha: en hann Magnús Geir er sko að gera það gott hér hjá LA og meðan hann er hér starfandi þá held ég áfram að kaupa mér árskort, jebb held nú það ;) ;) ;) ég fer oftar í leikhús en í bíó, pælið í því....hehe!!!

Ég er búin að velta fyrir mér heillengi núna hvort ég eigi að skella mér í fótbolta.. ha hmm veit að stúlkurnar hjá Magna síðasta sumar ætla að vera með lið, langar ekkert smá að skella mér á æfingar hjá þeim... mar var nú í boltanum þegar að maður var yngri ;) spurning um að dusta rykið af skónum og prufa aftur... hvað segi þið um það???

Díííí maður hvað þessi Söngvakeppni á laugardaginn var ÖMURLEG... margir söngvararnir voru RAMM FALSKIR og ég fékk bara GÆSAHÚÐ... og sum lögin voru bara hrein hörmung... gaman að sjá hvernig lögin verða næsta föstudag ;) Kannski félagarnir í VON fari bara í næstu Eurovision  hehe ;) hver veit ;)

Well back to work...


» 3 hafa sagt sína skoðun

20.01.2007 10:33:18 / Jóhanna

Sprækur sem lækur og bara...

öll að koma til úr þessum veikindum. :D Mætti í vinnuna í gær og aftur í morgun... nú er það bara alvara lífsins þessa helgi, eða VINNA...hehe ;)

Í kvöld hefst svo fyrsta keppni af þremur í söngvakeppni okkar Íslendinga, guvuð ég er svo spennt á að sjá hvaða HÖRMULEGA lag getur átt möguleika á að fara út og gera okkur Íslendinga af FÍFLUM 8| Held að við Íslendingar ættum að hætta þessu rugli, okkar helstu og bestu söngvarar eru alfarið hættir að gefa kost á sér í þetta rugl.. ég er ekki hissa á því :$ Þetta hefur verið hrein hörumung undanfarið.... en kannski gott lag inn á milli... :( en jæja best að halda þessu bara útaf fyrir sig.... þið hafið kannski aðra skoðun á þessu!!!!!!!!!

Nú er aðeins tæp vika þangað til að ég verð farin að finna lyktina af öllum verslununum í RVK city :haha::haha::haha: úúúú get ekki beðið.. er samt búin að lofa sjálfri mér að vera mjög SPARSÖM, en jú jú maður getur víst ekki ALLTAF staðið við loforð, eða hvað..hihi ;) We´ll see ;)

Á eftir ætla ég svo að fara með litla prinsin minn í smá versl.leiðangur (ekki leiðinlegt fyrir mig) og kaupa á hann Stuttbuxur og bol, þar sem hann er að byrja í íþróttaskólanum á morgun.. og jújú maður verður nú að vera flottur í íþróttafötum þegar að það byrjar ;)

Well.. hafið það gott eskurnar og góða helgi :P 


» 0 hafa sagt sína skoðun

17.01.2007 20:30:33 / Jóhanna

Hiti, hausverkur og það sem fylgir....

Úff,,, þetta er bara ekkert grín :$ lagðist í pest í gær, rauk upp í hita og hausverk, sem mig kannski alveg grunaði þar sem ég var búin að vera heavy þreytt eitthvað og skrítin í vinnunni í gær... var sofnuð fyrir 10 í gær og var ekki að geta vaknað í morgun, en náði að opna augun um 10 leytið... já takk fyrir takk 12 tíma svefn 8|, og drulluslöpp.. um hádegi var ég svo öll að frískast... nei nei rauk aftur upp í hita um 6 leytið áðan.. þetta er bara ekkert grín :(

Ég veit bara ekkert leiðinlegra en að vera veik og þurfa að hanga heima og geta ekki gert NEITT... arrrrrrr :evil: fer virkilega í skapið á mér!!!! Var að deyja í dag, langði svo að taka tusku og þrífa og skúra... en nei heilsan ekki alveg að leyfa það :(  svona er það... best að fara vel með sig svo maður tapi ekki geðheilsunni að hanga svona inni ;)

Vona bara að þið hafið það gott þarna úti, hvar sem þið eruð og farið vel með ykkur ;) hef ekki fréttir handa ykkur, þar sem maður fréttir frekar lítið svona einn og yfirgefinn heima hjá sér... :$:$:$


» 4 hafa sagt sína skoðun

15.01.2007 13:34:58 / Jóhanna

Þreyta, kuldi og bara allur pakkinn...

einhver óheyrileg þreyta er í gangi hjá mér... og því fylgir svo mikill hrollur og kuldi að ég er hreinlega frosin í vinnunni... drrrrrr!!!!! :$:$:$ er ekki að skilja þetta... eins gott að veikindi séu ekki að brjótast út hjá mér. Nenni ekki þeim pakka núna.. NEI TAKK!!!!

Shitturinn titturinn... ég skrapp aðeins út á lífið á laugard.kvöldið, fyrst staffadjamm og svo var skroppið í bæinn á eftir... en nóg um það, þegar að ég vaknaði á laugardagsmorgunin þá labbaði ég eins og spýtukarl, eða nei ég gat bara nánast ekkert labbað 8|8|... en málið er það að ég fékk svo mikla strengi, þar sem að mín fjárfesti sér í Fjölþjálfanum á föstudaginn og tók svo á því á laugardagsmorgunin þannig að ég fattaði það um leið og ég fann fyrir þessu að ég hafði ekki teygt nógu vel á eftir þjálfunina á laugardaginn.. SHIT :$ viti menn, ég er ENN að farast í kálfunum og labba um eins og spýtukarl... en ræktin í kvöld, vonandi hleyp ég harðsperrurnar af mér bara ;) EÐA VONA ÞAÐ, svo er náttúrulega svo SPENNANDI í One tree hill í kvöld að maður má varla vera að því að fara í ræktina... EN það er sjónvarp þar þannig maður gerir bara æfingar inn á milli ...hehehe ;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

12.01.2007 11:31:48 / Jóhanna

Enn og aftur komin helgi....

díííí maður hvað þetta líður ALLT ALLT OF HRATT8|.... nær bara ekki nokkurri átt. Ein helgin nýbúin og önnur að hefjast, ekki það að helgarnar séu eitthvað slæmar..8| ALLS EKKI!!!! Ljúft að slaka aðeins á ;) ekki það að ég komi til með að slaka mikið á þar sem að það verður sko tekið á því á laugard.kvöldið.. STAFFADJAMM yeah babe!!! :haha::haha::haha: Jebb, litli prinsinn minn ætlar að gista hjá ömmu sinni á laugard.kvöldið svo ég komist út á lífið ;)

Í gær komu Erla og The Sun og Erla babe hlóð inn svona hellings af tónlist, myndum og allskonar drasli í tölvuna mína.. jah man... nú get ég bara verið í tölvunni allan daginn og alla daga... Sénsinn að ég nenni því maður!!! :$ Neibb, er að hugsa um að fjárfest mér frekar í fjölþjálfa svo ég geti gert eitthvað á meðan ég glápi á imbann, þar sem maður er nú einstæður foreldri, þá nennir maður ekki alltaf að fá sér pössun til að komast í ræktina, þá er þetta góð lausn finnst mér.. ha hmm ha!!!! 

Jæja best að halda áfram vinnu sinni.... Góða helgi ;)


» 7 hafa sagt sína skoðun

09.01.2007 19:53:51 / Jóhanna

Smá samantekt frá 2006

Úff fór allt í einu að spá í hvað gerðist síðasta ár hjá mér... Úff.. veit ekki hvar ég á að byrja.. En hér er smá samantekt:

Byrjun árs, þá seldum við Siggi íbúðina okkar í Borgahlíð og skrifuðum undir kaup á nýrri íbúð, Vallartúni 6, fluttum svo til tengdó og bjuggum þar í 7 mánuði tæpa... Úff ekkert smá langur tími, en fljótur að líða. Í apríl skipti ég svo um vinnu sem ég sé sko ekki eftir. Líður mjög vel í þessari vinnu, þó maður sakni nú alltaf gömlu félagana..hehe ;) Eignaðist svo litla frænku í júlí, og fengum einnig afhent nýju íbúðina sem by the way, mér líður ekkert SMÁ VEL Í, pöntuðum okkur fer á Costa del sol í ágúst, seldum einnig Skodann okkar í ágúst.. sniff sniff :cry: Sakna hans mjög mikið :cry: keyptum okkur annan bíl í sept VW Golf stationer ;) Fórum til Spánar í sept.. GEGGJUÐ FERÐ.. en skildi svo í Nóvember.. Hmmmm!!! Life goes on and I´m happy about it :haha::haha::haha:  Fór svo og endaði árið í faðmi ættingja og vina á Sigló city... Bara nokkuð gaman skal ég segja ykkur ;)

Jahá.. þetta var úrdráttur árið 2006... og ég ákvað að strengja engin áramótaheit, nema þá lifa lífinu fyrir mig og strákinn minn í rólegheitum og hafa það ROSA GOTT ... Jah man ;)

Meira var það ekki að sinni... LATER :haha:


» 0 hafa sagt sína skoðun

08.01.2007 12:56:48 / Jóhanna

Þreyta í gangi á þessum bæ...

átti frábæra helgi með Mæju minni og familiu.  Borðuðum öll saman þessa steik á þrettándanum, svo héldum við Mæja heim til mín, en litli prinsinn varð eftir hjá ömmu sinni og fékk að gista, á meðan við fengum gesti og skelltum okkur svo um 2 leytið niður í bæ... Váá var stappað eða var stappað á Kaffi Ak... shitt hvað voru margir, enda hélt ég að ég myndi kafna úr hita þarna inni... þvílikur troðningurinn!!!!!!  En samt var þetta geggjað stuð....... :haha:

Dííí´hvað það er orðið e-ð dimmt hjá manni, þrátt fyrir MIKLA þreytu í gær þá hlunkaðist ég nú til þess að taka niður jólaskrautið og ganga frá því, fannst mér það nú vera alveg ótrúlegt afrek hjá mér miðað við ástandið á því heimilinu :$:$:$ he he Nú verður maður bara að vera dugleg að tendra kertaljósin á heimilinu svo það verði ekki svona dimmt hjá manni....

Shjæse.. svo eru nú ekki nema 5 daga í næsta djamm... 8|fjúff, maður er varla búin að ná sér eftir eitt þegar að næsta er..hehehehehe :D Jahá.. brjálað að gera hjá manni þegar að maður er orðin svona SINGLE..hihi nei nei segi svona, enda var að spá í það á föstudaginn að næstu 6 helgar er ég bara BUSY... vóóóó þetta á eftir að líða allt allt of hratt..... :haha: bara gaman að því ;)

well... meira síðar ;) Thiao


» 3 hafa sagt sína skoðun

05.01.2007 12:56:22 / Jóhanna

Það er að koma helgi.... Tralalalalalaaaaaaaaa

Að vísu tók ég að mér aukavinnu í nokkrar klst. um helgina, en það verður nú svo fljótt að líða maður!! Svo er sko þrettándagleði heima hjá mér annaðkvöld eftir mat, svo endilega kíkkið við ef ykkur langar í eitthvað fljótandi..hehe ;)

Nú er hún Mæja mín að fara að leggja af stað norður til mín.. Oh hvað mig hlakkar til að fá hana í heimsókn :haha::haha::haha: hef ekki séð hana SVO LENGI... :$ 

Höfum þetta gott í bili.. meira síðar ;)  

Góða helgi alle sammen... ;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8